Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti rektors Menntaskólans í Hamrahlíð laust til umsóknar

Menntaskólinn við Hamrahlíð

Menntaskólinn við Hamrahlíð er opinber framhaldsskóli sem var stofnaður árið 1966. Markmið skólans er velgengni brautskráðra nemenda og að skólinn sé fyrirmynd um framsækna kennslu, góða stjórnsýslu og rækt við menningu og listir. Skólinn býður upp á nám á eftirtöldum brautum: IB-námsbraut, félagsfræðabraut, listdansbraut, málabraut, náttúrufræðibraut, opinni braut, sérnámsbraut og tónlistarbraut. Starfsmenn eru að jafnaði um 130 og fjöldi nemenda í dagskóla eru um 1200.

Menntaskólinn við Hamrahlíð rekur námsbraut til alþjóðlegs stúdentsprófs (International Baccalaureate Diploma), hefur umsýslu með listdansi fyrir hönd ráðuneytis í samstarfi við fjóra listdansskóla og annast jafnframt kennslu í bóknámi fyrir Menntaskóla í tónlist.

Hæfnikröfur

Leitað er eftir einstaklingi með umfangsmikla stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnumótunarvinnu, hæfileika til nýsköpunar og að stýra breytingum. Þekking og reynsla af stjórnsýslu, fjármálum og rekstri er einnig mikilvæg. 

Menntunarkröfur

Samkvæmt 14. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008, skal skólameistari hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi.

Starfssvið

Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar. Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans.

Ráðning og kjör

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2018.

Um laun skólameistara fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

Umsóknir

Umsóknir með greinargerð umsækjenda um framtíðarsýn fyrir Menntaskólann við Hamrahlíð (út frá faglegum og rekstrarlegum áherslum í skólastarfi) með upplýsingum um núverandi starfsheiti umsækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík eða á netfangið [email protected], fyrir kl. 16:00, mánudaginn 30. apríl 2018.

Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að loknum umsóknarfresti og verða umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar ekki teknar til greina. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Pétur Hjaltested rekstrarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2018.

 

Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 13. apríl 2018.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum