Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2018

Hjúkrunarfræðingar - Landspítali, kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild - Reykjavík - 201804/816

 

Hjúkrunarfræðingar óskast á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG Landspítala

Umsóknarfrestur framlengdur til og með 28. maí 2018.  Starfið auglýst 21. apríl 2018.
 
Viljum ráða áhugasama og jákvæða hjúkrunarfræðinga til starfa á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG. Í boði er áhugavert starf með góðu samstarfsfólki. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Bjóðum einstaklingsaðlagaða þjálfun, eftir þörfum hvers og eins með áherslu á fagmennsku og starfsþróun.

Deildin þjónar einstaklingum sem glíma við sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og í þvagfærum. Starfshlutfall er samkomulagsatriði og búið er að innleiða viðbragðsvaktir á deildinni.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar
» Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð 
» Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Faglegur metnaður og frumkvæði
» Jákvætt viðhorf og góðir samskiptahæfileikar
» Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Æskilegt að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða 3 stöðugildi. 
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.05.2018

Nánari upplýsingar veitir
Erla Dögg Ragnarsdóttir - [email protected] - 824 5875

LSH Kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum