Hoppa yfir valmynd
23. apríl 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Um rammasamning við ljósmæður og þjónutu við sængurkonur

Heilbrigðisráðherra leggur kapp á að finna fyrirkomulagi á þjónustu við sængurkonur í heimahúsum traustari umgjörð en felst í þeim rammasamningi sem starfað hefur verið eftir hingað til. Þótt afsögn ljósmæðra af rammasamningi snerti nýbakaðar mæður óhjákvæmilega munu þær engu að síður njóta allrar þjónustu sem þörf er fyrir.

 

Ekki er rétt sem haldið hefur verið fram opinberlega að fyrir liggi drög að samningi í velferðarráðuneytinu sem bíði staðfestingar heilbrigðisráðherra. Hið rétta er að 23. mars sl. komu Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) á framfæri við ráðuneytið minnisblaði með tillögum að breytingum á rammasamningnum sem starfað hefur verið eftir til þessa, í kjölfar samningaviðræðna SÍ við ljósmæður.

Tillögurnar sem  um ræðir fela í sér skerðingu á heimaþjónustu ljósmæðra sem ljóst er að myndu hafa töluverð áhrif inn á fæðingardeildir sjúkrahúsanna, þar sem verið væri að breyta faglegum áherslum þjónustunnar með lengri legutíma hjá hluta mæðra og það fæli jafnframt í sér aukið álag á fæðingardeildirnar.

Velferðarráðuneytið leitaði umsagnar Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og Landspítalans við tillögum að breyttri heimaþjónustu ljósmæðra á rammasamningi. Viðbrögð SAk bárust ráðuneytinu fyrir nokkru og Landspítalinn sendi ráðuneytinu afstöðu sína í morgun. Í stuttu máli er það mat fagfólks beggja sjúkrahúsanna að þær breytingar á þjónustunni sem þarna eru lagðar til séu óæskilegar og leiði jafnt til lakari þjónustu við mæður og foreldra nýbura og aukins kostnaðar. Um þetta segir m.a. í umsögn Landspítala að lengri sjúkrahúslega auki hættuna á spítalasýkingum bæði er varðar móður og barn.

Velferðarráðuneytið mun síðar í dag funda með Sjúkratryggingum Íslands um stöðu þessa máls og næstu skref. Enn fremur hefur heilbrigðisráðherra í dag sent erindi til allra heilbrigðisstofnana landsins með tilmælum um að heilbrigðisstofnanir veiti þá þjónustu sem áðurgildandi samningur milli SÍ og ljósmæðra fól í sér, þar til fyrir liggur með hvaða hætti fyrrgreind þjónusta verður veitt.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum