Sumarstörf - Sjúkratryggingar Íslands - Reykjavík - 201804/868
Sumarstörf hjá Sjúkratryggingum Íslands - Sumarafleysingar
Sjúkratryggingar Íslands óska eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar í nokkrum deildum stofnunarinnar. Starfstími er allt að þrír mánuðir á tímabilinu frá miðjum maí til loka ágúst eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Deild birgðahalds hjálpartækja og dreifingar á Hjálpartækjasviði
- Viðgerðir og vinna við hjálpartæki á lager
- Ýmis önnur verkefni á lager
Deild hjálpartækja og næringar á Hjálpartækjasviði
- Afgreiðsla hjálpartækjaumsókna og bókun reikninga
Þjónustuver á Fjármála og rekstrarsviði
- Þjónusta við viðskiptavini og símsvörun
Hæfnikröfur
- Stúdentspróf eða sambærilegt próf
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Fyrir starf við viðgerðir: Einhver reynsla sem nýtist af viðgerðum og við að gera upp tæki
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands, www.sjukra.is/starf. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Ráðning tekur mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar sjukra.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.05.2018
Nánari upplýsingar veitir
Freyr Halldórsson - [email protected] - 5150000
SJTR Mannauður
Vínlandsleið 16
150 Reykjavík
Smelltu hér til að sækja um starfið