Hoppa yfir valmynd
16. maí 2018 Dómsmálaráðuneytið

Kynferðisbrot í brennidepli

Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er því lýst yfir að eitt af höfuðverkefnum hennar sé að vinna að umbótum í meðferð kynferðisbrota. Þetta ætli ríkisstjórnin að gera með nýrri aðgerðaáætlun, endurskoðun og umbótum á löggjöfinni og fullgildingu Istanbúl-samningsins, sem hefur það að markmiði að vernda konur og börn fyrir ofbeldi.

Vinna við þessa aðgerðaáætlun er hafin. Þannig var  Istanbúl-samningurinn fullgiltur af Íslands hálfu 26. apríl 2018. Þá hefur dómsmálaráðherra lagt fram markvissa og framsækna aðgerðaáætlun um úrbætur í meðferð kynferðisbrota. Tilgangur hennar er að styrkja innviði réttarvörslukerfisins með það að markmiði að bæta stöðu brotaþola innan þess og efla og samhæfa þjónustu við þá landsvísu. Þá hefur forsætisráðherra skipað þverfaglegan stýrihóp, sem hefur það hlutverk m.a. að fylgja eftir og vinna að heildstæðum úrbótum til að draga úr og sporna gegn kynferðislegu ofbeldi, m.a. með því að rýna lagaumhverfi kynferðisbrota í þeim tilgangi að styrkja stöðu kærenda brotanna. Í hópnum sitja fulltrúar fimm ráðuneyta og fer fulltrúi forsætisráðherra, Halla Gunnarsdóttir, fyrir hópnum.

Í þeim tilgangi að styðja við og stuðla að markvissri innleiðingu umbóta í réttarvörslukerfinu í samræmi við aðgerðaætlun ríkisstjórnarinnar um bætta meðferð kynferðisbrota hafa dómsmálaráðuneytið, lagadeild og sálfræðisvið Háskólans í Reykjavík og Háskólinn á Akureyri boðað til ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota undir heitinu „Kynferðisbrot í brennidepli“. Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 25. maí 2018 í Háskólanum í Reykjavík. Að borðinu hafa verið kallaðir sérfræðingar og fræðimenn til að leggja sitt á vogarskálarnar til að stuðla að vandaðri meðferð mála vegna kynferðisbrota og uppbyggilegri umræðu um málaflokkinn. Í samræmi við áherslur í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar er sjónum fyrst og fremst beint að þolendum brotanna. Frummælendur koma úr háskólasamfélaginu og réttarvörslukerfinu, auk þess sem móðir eins þolanda mun deila reynslu sinni. 

Dagskrá

09.00   Setning
Svala Ísfeld Ólafsdóttir sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu og dósent við lagadeild HR.

09.05  Ávarp
Sigríður Andersen dómsmálaráðherra.

09.15   Frá áætlun til framkvæmda: Næstu skref í baráttunni gegn kynferðisofbeldi
Halla Gunnarsdóttir formaður stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi  .

09.30 – 10.30
Þögnin rofin á samfélagsmiðlum
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir dósent og Rannveig S. Sigurvinsdóttir aðjúnkt við sálfræðisvið HR.

Karlar sem þolendur kynferðisbrota
Sigrún Sigurðardóttir lektor og formaður Rannsóknarmiðstöðvar gegn ofbeldi við HA og Elísa Dröfn Tryggvadóttir BA í sálfræði og MS í heilbrigðisvísindum.

Reynsla kvenfanga af kynferðisofbeldi
Arndís Vilhjálmsdóttir geðhjúkrunarfræðingur og meistaranemi í heilbrigðisvísindum við HA

10.30   Kaffihlé

10.45 – 12.15
Börn sem þolendur
Þorbjörg Sveinsdóttir MSC í sálfræði og sérfræðingur í Barnahúsi.

Skýrslutaka af barni á rannsóknarstigi
Hulda Elsa Björgvinsdóttir yfirmaður ákærusviðs hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.

Þolendur í viðkvæmri stöðu
Kristján Ingi Kristjánsson lögreglufulltrúi í kynferðisbrotadeild Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Framburður þolanda fyrir dómi í viðurvist ákærða
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara.

Nauðgun unglingsstúlkna: Athugun á málsmeðferðartíma frá kæru til dóms.
Svala Ísfeld Ólafsdóttir sérfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu og dósent við lagadeild HR.

12.15 - 13.00 Hádegishlé

13.00 – 14.30
Vernd barna gegn dæmdum kynferðisbrotamönnum
Ólafur Örn Bragason réttarsálfræðingur.

„Hér með tilkynnist yður að málið hefur verið fellt niður“
Sigurþóra Bergsdóttir móðir.

Stuðningur við þolendur á lögreglustigi máls
Agnes Björk Blöndal lögfræðingur við embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.

Reynsla þolenda af niðurfellingu máls
Karen Birna Þorvaldsdóttir BA í sálfræði og meistaranemi í heilbrigðisvísindum við HA 

Hlutverk réttargæslumanns þolanda
Kolbrún Garðarsdóttir lögmaður

14.30 Kaffihlé

14.45 – 16.00
Sálræn áföll og reynsla af kynferðisofbeldi meðal karlkynsfanga
Hrafnhildur Gunnþórsdóttir BA í sálfræði og MS í heilbrigðisvísindum.

Afplánun refsivistar og hvað svo?
Sólveig Fríða Kjærnested sálfræðingur og sviðsstjóri meðferðarsviðs Fangelsismálastofnunar

Menntun lögreglumanna og þekking á kynferðisbrotum og kynferðislegu ofbeldi.
Eyrún Eyþórsdóttir aðjúnkt í lögreglufræði við HA og fyrrverandi lögreglufulltúi í kynferðisbrotadeild Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

16.00   Samantekt og umræður

16.30   Ráðstefnulok

Fundarstjóri: Svala Ísfeld Ólafsdóttir

Ráðstefnan er opin öllum og aðgangur er ókeypis. Streymi er á slóðinn: livestream.com/ru/kynferdisbrot2018

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum