Hoppa yfir valmynd
16. maí 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

„Láttu þér líða vel“

„Láttu þér líða vel“  - myndMOTIV/Pálmi Ásbjarnarson
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla fyrir árið 2018 voru afhent í vikunni og hlaut verkefnið „Láttu þér líða vel“ verðlaunin að þessu sinni. Guðrún Gísladóttir, kennari í Vogaskóla fer fyrir verkefninu sem hófst fyrir um tveimur árum. Að verkefninu koma fulltrúar nemenda, foreldra, kennara og skólastjórnendur. Verkefnið leggur áherslu á geðrækt og mikilvægi þess að byrja við upphaf skólagöngu að veita nemendum verkfæri til að stjórna eigin líðan og hegðun. Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður dómnefndar, sagði við afhendingu verðlaunanna að það að hlúa að geðheilsu og styrkja sjálfsmynd barna myndi ekki einungis efla nemendur og bæta líða þeirra heldur hefði það einnig jákvæð áhrif á námsárangur, skólastarf og skólabrag. Verkefnið myndi enn fremur efla samstarf heimila og skóla með hagsmuni barna og samfélagsins að leiðarljósi. Guðrún sagði verðlaunin vera gríðarlega hvatningu til að halda áfram á sömu braut og gera meira.

Dugnaðarforkur Heimilis og skóla var einnig útnefndur í gær en þann titil hlaut Birgitta Bára Hassenstein sem hefur verið formaður SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, í fjögur ár og þar áður sat hún í stjórn samtakanna. „Birgitta Bára brennur fyrir málefnum og réttindum barna í grunnskólum og er leitun að annarri eins ástríðu og dugnaði,“ segir í tilnefningu. Hún er áheyrnarfulltrúi foreldra í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur og hefur setið í fjölmörgum starfshópum sem fjalla um málefni grunnskólans, allt í sjálfboðavinnu. Hún hefur staðið fyrir fjöldamörgum öflugum verkefnum og nú síðast var hún hugmyndasmiður og driffjöður í verkefninu „Allir með – tölum um skólamenningu á Íslandi“ sem unnið var í samstarfi SAMFOK og Móðurmáls – samtaka um tvítyngi. Verkefnið gengur út á að virkja foreldra barna af erlendum uppruna í foreldrastarfi. Það verkefni hlaut sérstök Hvatningarverðlaun Heimilis og skóla 2018 en í tengslum við verkefnið voru haldin 10 málþing um skólamál á Íslandi á tíu tungumálum.

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru nú afhent í 23. sinn og afhenti Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, verðlaunin ásamt Önnu Margréti Sigurðardóttur, formanni Heimilis og skóla. Hún nefndi í ávarpi sínu að íslenskt skólakerfi stæði nú frammi fyrir ýmsum áskorunum en öflugt skólasamfélag og ekki síst foreldrar væru mikilvægir bandamenn í þeirri umbótavinnu sem framundan er.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum