Hoppa yfir valmynd
31. maí 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Úthlutað úr Hljóðritasjóði

Tilkynnt hefur verið um úthlutanir úr Hljóðritasjóði fyrir fyrri hluta ársins 2018. Sjóðurinn veitir styrki til hljóðritunar nýrrar, frumsamdrar tónlistar en markmið hans er að efla útgáfu íslenskrar tónlistar og hljóðverka. Alls bárust 89 umsóknir til sjóðsins að þessu sinni.

Meðal þeirra 58 verkefna sem hljóta styrki nú eru tvær barnaplötur, fjórar plötur með kóratónlist, níu verkefni sem flokka má undir samtímatónlist, fimm plötur með rokktónlist, fjórar hip-hop plötur og þrjár jazz plötur. Gott samræmi reyndist úrvali tónlistartegunda þeirra verkefna sem sóttu um styrki og þeirra sem hljóta styrk. Sömu sögu má segja um kynjahlutfall umsækjenda og styrkþega. Heildarupphæð styrkjanna að þessu sinni er 17,6 milljónir kr.

Rannís hefur umsýslu með Hljóðritasjóði og má nálgast nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutanir hans á heimasíðu þeirra.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum