Hoppa yfir valmynd
13. júní 2018 Forsætisráðuneytið

Úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands 19. júní

Þriðjudaginn 19. júní fara fram styrkveitingar úr Jafnréttissjóði Íslands fyrir árið 2018. Félags- og jafnréttismálaráðherra veitir styrkina við formlega athöfn á Hótel Borg kl. 11:00-13:00 og eru allir velkomnir.

Jafnréttissjóður Íslands var stofnaður í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna árið 2015. Megintilgangur sjóðsins er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu.

Dagskráin til útprentunar

DAGSKRÁ

Opnun, formaður stjórnar Jafnréttissjóðs Íslands
Anna Kolbrún Árnadóttir

Ávarp forsætisráðherra
Katrín Jakobsdóttir

Kynningar á verkefnum styrkþega:

  • Takmarkar internetið mannréttindavernd? Staða og framgangur rannsóknar
    María Rún Bjarnadóttir
  • Íslenskar lausnir og alþjóðleg tækifæri – þátttaka karla á vettvangi jafnréttismála
    Arnar Gíslason
  • Kynjuð fjármál fyrir allskyns fólk – kynningarmyndbönd
    Freyja Barkardóttir
  • Kraftur til kvenna á flótta
    Stella Samúelsdóttir, Landsnefnd UN Women á Íslandi

Ávarp félags- og jafnréttismálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason

Úthlutun styrkja
Ásmundur Einar Daðason
Anna Kolbrún Árnadóttir

Fundarstjóri:
Árni Matthíasson, fulltrúi í stjórn Jafnréttissjóðs Íslands

Léttar veitingar

Stjórn Jafnréttissjóðs Íslands

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum