Hoppa yfir valmynd
14. júní 2018 Matvælaráðuneytið

Skipað í starfshóp um úthlutun tollkvóta

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað fimm manna starfshóp um endurskoðun á regluverki um úthlutun tollkvóta. Tilefnið er tollasamningar Íslands og Evrópusambandsins sem tóku gildi 1. maí sl. en samkvæmt þeim stækka tollkvótar til muna, einkum á kjöti og ostum. Innflutningur innan þessara tollkvóta er tollfrjáls og verður aukinn í skrefum til ársins 2021.

Hlutverk starfshópsins er að endurskoða núverandi fyrirkomulag um úthlutun tollkvóta og finna leiðir til þess að koma ávinningnum sem skapast með þessum takmörkuðu gæðum í meira mæli til neytenda í formi lægra vöruverðs.

Starfshópurinn skal ljúka störfum eigi síðar en 1. nóvember 2018 og skila þá skýrslu með tillögum til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

  • Óli Björn Kárason, alþingismaður, formaður
  • Arnar Freyr Einarsson, hagfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
  • Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna
  • Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Bændasamtökum Íslands
  • Tryggvi Másson, sérfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: “Tollasamningar Íslands og Evrópusambandsins sem tóku gildi 1. maí sl. fela í sér umtalsverða stækkun tollkvóta sem koma til framkvæmda á næstu árum. Því er mikilvægt að staldra við og endurskoða það hvernig við úthlutum þessum takmörkuðu gæðum. Í mínum huga er grundvallaratriði að mögulegar breytingar skili sér með sem bestum hætti til neytenda í formi lægra vöruverðs og aukins vöruúrvals.”

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum