Hoppa yfir valmynd
17. júní 2018 Forsætisráðuneytið

Ávarp forsætisráðherra á Austurvelli 17. júní 2018

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flytur ávarp á Austurvelli - mynd
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, las upp úr 100 ára gamalli dagbókarfærslu Elku Björnsdóttur, verkakonu í Reykjavík, í ávarpi sínu á Austurvelli í dag, 17. júní 2018. Elka var 37 ára árið 1918, vann við að ræsta skrifstofur í Reykjavík og átti þátt í stofnun verkakvennafélagsins Framsóknar og Alþýðuflokks Íslands:

„Þessar hundrað ára gömlu dagbókarfærslur vekja okkur til umhugsunar um kjör og aðstæður þeirra sem þá voru uppi. Sömuleiðis um samfélagsgerðina þar sem konur yfir fertugu höfðu fengið kosningarétt aðeins þremur árum fyrr og ákvarðanir voru teknar með allt öðrum hætti en núna. Samfélagið er sannarlega breytt frá því fyrir einni öld. Raddir samfélagsins eru fleiri og fjölbreyttari en á Íslandi ársins 1918 og það er gott enda er þörfin brýn fyrir hæfileika á ólíkum sviðum, hugmyndir, dugnað og metnað,” sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.

Forsætisráðherra minntist á íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu og hvernig einurð, metnaður og þrotlaus vinna liggi að baki árangurs þeirra. Þá talaði hún um hvernig áherslan á liðsheild skipti miklu máli og séu dýrmæt skilaboð til okkar allra í samfélaginu.

Forsætisráðherra talaði um þá tæknibyltingu sem er að eiga sér stað og hvernig áhrif hún hefur m.a. á samskipti fólks og stjórnmálaumræðuna: „Við höfum öll færi til þess hér á Íslandi að vera gerendur í tæknibyltingunni frekar en þiggjendur. Sagan sýnir okkur að stórhug hefur aldrei skort hér á landi og það er ábyrgð okkar að sækja fram í komandi breytingum til þess að tryggja áframhaldandi velsæld og jöfnuð.”

Að lokum minntist forsætisráðherra á mikilvægi þess að greiða götuna áfram til betra samfélags á Íslandi:

„Hátíðardagar eins og 17. júní og 1. desember minna okkur á að við stöndum á herðum þeirra kynslóða sem á undan okkur fóru. Við þurfum að vera sívakandi við að leggja okkar af mörkum til að greiða götuna áfram til betra samfélags á Íslandi. Þetta er nefnilega gott land og gott samfélag. Gleymum því aldrei að hér búum við þvert á ýmsar hrakspár öldum saman vegna þess að hér er gott að vera og vegna þess að þrátt fyrir allt þykir okkur vænt hverju um annað. Það er líklega það dýrmætasta af öllu.”

Ræðu forsætisráðherra má finna hér í heild sinni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum