Hoppa yfir valmynd
23. júní 2018

Sérfræðingur í nýburalækningum

Sérfræðingur í nýburalækningum á Barnaspítala Hringsins 

Laust er til umsóknar starf barnalæknis, sérfræðings í nýburalækningum, á Barnaspítala Hringsins. Starfshlutfall er 50 - 100% og er starfið laust frá 1. október 2018 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Þátttaka í starfi nýburalækna á Vökudeild Barnaspítala Hringsins, þ.m.t. staðar- og gæsluvöktum samkvæmt vaktafyrirkomulagi
» Umönnun og eftirlit nýbura á kvennadeild Landspítalans
» Nýburaskoðun og eftirfylgd með börnum á göngudeild Barnaspítalans
» Skipulag og þróun umbótaverkefna og verkferla
» Þátttaka í kennslu og vísindavinnu sem og önnur sérverkefni í samráði við yfirlækni

Hæfnikröfur
» Íslenskt sérfræðileyfi í nýburalækningum
» Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
» Stjórnunar- og leiðtogafæri tengt m.a. umbótaverkefnum og þróun/ innleiðingu verkferla
» Frumkvæði og metnaður til að ná árangri 
» Vilji og hæfni til að starfa í þverfaglegu teymi
» Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf sérfræðilæknis er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í kjarasamningi lækna og ríkisins 2015. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn skulu fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum, ásamt afriti af helstu ritsmíðum sem umsækjandi hefur ritað eða átt þátt í. 

Mat stöðunefndar læknaráðs Landspítala byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. 

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar í almenna umsókn og senda sem viðhengi, en ýtarlegri upplýsingar í umsókn fyrir læknisstöðu, sjá slóð hér fyrir neðan.

Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað Embættis landlæknis

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2018

Nánari upplýsingar veitir
Þórður Þórkelsson - [email protected] - 825 5094

LSH Nýburalækningar
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum