26 sóttu um starf skrifstofustjóra á skrifstofu landbúnaðar og matvæla
Alls bárust 26 umsóknir um starf skrifstofustjóra á skrifstofu landbúnaðar og matvæla í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu en skrifstofan er ein þriggja fagskrifstofa sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum nr. 393/2012, um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
- Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri
- Arnljótur Bjarki Bergsson, sviðsstjóri
- Arnór Snæbjörnsson, sérfræðingur
- Auður Finnbogadóttir, viðskiptafræðingur
- Benedikt S. Benediktsson, sérfræðingur
- Bjarni Ragnar Brynjólfsson, skrifstofustjóri
- Elvar Árni Lund, framkvæmdastjóri
- Erna Bjarnadóttir, sérfræðingur
- Gísli Rúnar Gíslason, deildarstjóri
- Gunnar Rúnar Kristjánsson, verkefnastjóri
- Gústaf Adolf Skúlason, ráðgjafi
- Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri
- Jón Óskar Pétursson, sérfræðingur
- Jóna Sólveig Elínardóttir, Rannsóknarmaður og verkefnisstjóri
- Kjartan Hreinsson, sérfræðingur
- Margrét Katrín Guðnadóttir, verslunarstjóri
- Maríanna H. Helgadóttir, formaður
- Ragnar Egilsson, framkæmdastjóri
- Rebekka Hilmarsdóttir, sérfræðingur
- Sigríður Hjaltadóttir, rekstrarstjóri
- Sigurður Torfi Sigurðsson, ráðgjafi
- Skúli Þórðarson, MPA opinber stjórnsýsla
- Steinunn Grétarsdóttir, deildarstjóri
- Unnar Hermannsson, sérfræðingur
- Zita Rézné Zádori, íþróttakennari
- Þórdís Anna Gylfadóttir, verkefna- og viðburðastjóri