Hoppa yfir valmynd
12. júlí 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starf sérfræðings á skrifstofu stefnumótunar og fjárlagagerðar

Mennta- og menningarmálaráðuneytið - mynd

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu stefnumótunar og fjárlagagerðar. Um er að ræða tvö full störf sérfræðinga.

Starfið felur einkum í sér aðkomu að fjármálaáætlun, fjárlagagerð, eftirfylgni með framkvæmd fjárlagagerðar og ýmsum tilfallandi verkefnum tengdum fjárreiðum þeirra málefnasviða og málaflokka sem falla undir ráðuneytið. Viðkomandi þarf að búa yfir frumkvæði, sjálfstæðum vinnubrögðum, færni í miðlun og framsetningu upplýsinga, ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum. Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er æskilegt.

Menntakröfur eru háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegu námi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á lögum um opinber fjármál, starfsemi og rekstri opinberra stofnana, þar með bókhaldi rikisins. Auk þekkingar á verkbókhaldi og stefnumótun. Ráðuneytið leitar að einstaklingi sem er jákvæður, skipulagður og reiðubúinn til að takast á við krefjandi verkefni. Umsækjandi þarf að geta hafið störf í september nk. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningum Félags háskólamenntaðra stafsmanna stjórnarráðsins.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið [email protected].

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins. Umsóknir gilda í sex mánuði.

Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst 2018.

 

Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 12. júlí 2018.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum