Hoppa yfir valmynd
20. júlí 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Moody’s breytir horfum fyrir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í jákvæðar úr stöðugum

Matsfyrirtækið Moody’s Investors Service breytti í kvöld horfum fyrir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í jákvæðar úr stöðugum og staðfesti lánshæfiseinkunnina A3 fyrir langtímaskuldbindingar.

Lykilforsendur fyrir breytingu á horfum í jákvæðar úr stöðugum eru:

1. Aukinn þróttur hagkerfisins í ljósi bættrar erlendrar stöðu þjóðarbúsins, stöðugri hagvaxtar og vaxandi styrkleika bankakerfisins.

2. Horfur eru á því að skuldastaða ríkisins verði betri en væntingar stóðu til.  

Jákvæðar horfur endurspegla jafnframt þann árangur sem náðst hefur á síðustu tveimur árum varðandi þær meginforsendur sem Moody’s lagði til grundvallar þegar mat fyrirtækisins var hækkað í A3 í september 2016, þ.m.t. hnökralaus losun fjármagnshafta og lausn aflandskrónuvandans. 

Staðfesting á einkunninni A3 endurspeglar jafnvægi á milli ofangreindra jákvæðra þátta  og áskorana sem felast m.a. í smæð og tiltölulegri einhæfni hagkerfisins, þeirri óvissu sem ferðaþjónustan stendur frammi fyrir og getu hennar til að takast á við hægari en sjálfbærari vöxt, áskorunum varðandi samkeppnishæfni í ljósi komandi kjarasamninga og viðvarandi hættu sem stafar af ýktum fjármagnshreyfingum.

Fréttatilkynning Moody’s er hér í lauslegri þýðingu 

Fréttatilkynning Moody’ á ensku

Moody´s Credit Opinion 
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum