Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2018

Yfirlæknir lyflækninga krabbameina

Yfirlæknir lyflækninga krabbameina

Starf yfirlæknis lyflækninga krabbameina á lyflækningasviði Landspítala er laust til umsóknar. Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs. 

Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. 
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. nóvember 2018 eða eftir nánara samkomulagi. Ráðið er í starfið til 5 ára, sbr. 9.gr. laga nr. 40/2007 og stefnu Landspítala í ráðningum stjórnenda.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun lyflækninga krabbameina við sjúkrahúsið, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf, í samráði við prófessor í krabbameinslækningum, framkvæmdastjóra lyflækningasviðs og framkvæmdastjóra lækninga 
» Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði einingarinnar, í samráði fjármálaráðgjafa og framkvæmdastjóra lyflækningasviðs
» Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni, í samráði við mannauðsráðgjafa og framkvæmdastjóra lyflækningasviðs

Hæfnikröfur
» Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
» Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
» Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
» Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
» Frumkvæði og metnaður til að ná árangri 
» Íslenskt sérfræðileyfi í krabbameinslækningum eða almennum lyflækningum með krabbameinslækningar sem undirsérgrein 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í kjarasamningi lækna og ríkisins 2015.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn skulu fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
Umsókn fylgi einnig kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.

Allar umsóknir eru sendar til mats hjá stöðunefnd lækna hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar á almenna umsókn og setja viðhengi, en ýtarlegri upplýsingar í umsókn fyrir læknisstöðu, sjá slóð hér fyrir neðan. 

Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað Embættis landlæknis

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.09.2018

Nánari upplýsingar veitir
Hlíf Steingrímsdóttir - [email protected] - 824 5286

LSH Skrifstofa lyflækningasviðs
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum