Hoppa yfir valmynd
18. september 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Endurskoðun reglugerðar til að jafna rétt barna

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndVelferðarráðuneytið
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að láta endurskoða ákvæði reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga fyrir tannlækningar og tannréttingar barna vegna afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Ráðherra segir endurskoðun nauðsynlega þar sem gildandi reglugerðarákvæði virðist leiða til mismununar sem sé óverjandi.

Reglugerð nr. 451/2013 fjallar um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar. Í III og IV kafla reglugerðarinnar er fjallað um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar og tannréttingar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.

Málefni barns með skarð í vör sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu daga bendir til þess að börn með fæðingargalla sitji ekki öll við sama borð varðandi rétt til endurgreiðslu kostnaðar vegna nauðsynlegrar þjónustu: „Reglugerðin virðist leiða til þess að rétturinn til endurgreiðslu ræðst af því hvernig fæðingargallinn er, frekar en að litið sé til afleiðinganna sem hann hefur í för með sér og kostnaðarins sem hlýst af nauðsynlegum fyrirbyggjandi aðgerðum. Þetta kallar á endurskoðun svo unnt sé að jafna stöðu barna í samræmi við það sem er faglega réttmætt og réttlátt í þessum efnum“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum