Hoppa yfir valmynd
2. október 2018

Íslenski skólinn í París

Íslenski skólinn í París hefur göngu sína á ný laugardaginn 6. október kl. 10:30.  Eins og áður verður kennt í tvær klukkustundir í senn, eða til 12:30.
Stefnt er á að kenna í einum hóp á aldursbilinu 2ja-8 ára. Ef nægjanlega margir nemendur bætast í hópinn munum við hins vegar bæta við eldri hóp, 6-9 ára.

Áætlaðir kennslutímar yfir skólaárið eru sem hér segir :  

2018
6. október
13. október
10. nóvember
24. nóvember
8. desember
15. desember

2019
12. janúar
26. janúar
9. febrúar
16. mars
30. mars
13. apríl
11. maí
18. maí

Kennslustaður er óbreyttur: Sænski skólinn, 9, rue Médéric, 75017 París, metró Courcelles.  Gengið er inn um innganginn hjá sænsku kirkjunni á hægri hönd og farið upp hringstigann (eða í lyftu).    

Markmið skólans eru sem fyrr að gefa íslenskum börnum í París tækifæri til að eiga samskipti á íslensku, að læra að lesa og skrifa á íslensku með hliðsjón af grundvallaratriðum íslenskrar málfræði og að kynnast íslenskri sögu og menningu.

Skólagjöld eru óbreytt frá fyrra ári :  Fyrir eitt barn €140, fyrir tvö börn €200 og €270 fyrir 3 börn eða fleiri. Þeim sem óska eftir að tvískipta greiðslunni, stendur til boða að inna síðari greiðsluna af hendi  eftir áramót.

Vonumst til að sjá sem flesta!
Skólastjórnin

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum