Hoppa yfir valmynd
17. október 2018

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Bókasafns- og upplýsingafræðingur
 
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn leitar að starfsmanni í fjölbreytt starf á Þjónustu- og miðlunarsviði. Um fullt starf er að ræða.
Þjónustu- og miðlunarsvið ber ábyrgð á þjónustu við notendur, miðlun safnkosts og samskiptum við Háskóla Íslands. Meginverkefni eru útlán, millisafnalán, upplýsingaþjónusta, fræðsla og kynningar, umsjón með ritakosti og lesrýmum á 3. og 4. hæð í Þjóðarbókhlöðu, námsbókasafn, varðveislusöfnin Skemman, Opin vísindi og Landsaðgangur að rafrænum gögnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með námsbókasafni
- Samvinna og samskipti vegna námsbókasafns
- Umsjón með lessvæðum og uppröðun
- Útlán og afgreiðsla
- Fjölbreytt þjónusta við safngesti

Hæfnikröfur
- Háskólamenntun í bókasafns- og upplýsingafræði
- Mjög góð tölvukunnátta
- Góð tungumálakunnátta (íslenska, enska) 
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag bókasafns og upplýsingafræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun safnsins. 

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Tryggvadóttir, sviðsstjóri Þjónustu- og miðlunarsviðs

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Safnið er í forystu um öflun, varðveislu og miðlun upplýsinga og eflir þannig menningu, rannsóknir og nýsköpun. 

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn | Þjóðarbókhlöðunni | s. 525-5600 | www.landsbokasafn.is | Þekkingarveita í allra þágu

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.11.2018

Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Tryggvadóttir - [email protected] - 525-5731

LBS Þjónusta
Arngrímsgata 3
107 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum