Hoppa yfir valmynd
19. október 2018

Framhaldsskólakennari í spænsku

Við Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi er laus til umsóknar hálf staða framhaldsskólakennara í spænsku. Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í viðkomandi námsgrein og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.

Ráðning og kjör

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn þarf að greina frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti.

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara, [email protected], fyrir 5. nóvember 2018. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2019.

Upplýsingar um starfið og starfsaðstæður veitir Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari í síma 433 2500.

Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.

Sakavottorð fylgi umsókn.

Á heimasíðu skólans, www.fva.is, er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

 

Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum