Hoppa yfir valmynd
22. október 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Utanríkisráðherra Japans á Íslandi

Taro Kono, utanríkisráðherra Japans og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. - mynd
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra tók í forföllum utanríkisráðherra á móti Taro Kono, utanríkisráðherra Japans þegar hann kom til Íslands í opinbera heimsókn 18.-19. október. Taro Kono lýsti því yfir við það tækifæri að hann væri fyrstur utanríkisráðherra Japans til að heimsækja Ísland. Ræddu ráðherrarnir ánægjuleg pólitísk, efnahagsleg og menningarleg samskipti þjóðanna, þar á meðal á vettvangi Norðurskautsráðsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum