Hoppa yfir valmynd
11. desember 2018

Sálfræðingur í barna- og unglingageðteymi

Sálfræðingur í barna- og unglingageðteymi
 
Laus er til umsóknar 80% staða sálfræðings í barna- og unglingageðteymi Sjúkrahússins á Akureyri (BUG teymi SAk). Staðan veitist frá 1. mars 2019 eða eftir samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Andrea Andrésdóttir forstöðulæknir barnalækninga.
BUG teymi SAk er þverfaglegt teymi sem sinnir fjölþættum og alvarlegum vanda barna og unglinga á þjónustusvæði Sjúkrahússins á Akureyri. Leitað er að sálfræðingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi. Mikil tækifæri eru til að dýpka þekkingu sína í vinnu með börn og unglinga með geðrænan vanda. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Meðferðarvinna með einstaklinga og fjölskyldur þeirra
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Samvinna við aðrar stofnanir, svo sem skóla, félagsþjónustu og heilsugæslu
Ráðgjöf, handleiðsla og fræðsla
Sálfræðilegar greiningar

Hæfnikröfur
Íslenskt starfsleyfi sálfræðings
Áhugi og góð samskiptahæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Skipulögð vinnubrögð
Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af greiningum og meðferð barna og unglinga
Þjálfun í hugrænni atferlismeðferð og reynsla af beitingu hennar er kostur

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. 
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið alþjóðlega vottun á starfsemi sinni.

Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 14.01.2019
Nánari upplýsingar veitir

Andrea Elísabet Andrésdóttir - [email protected] - 463-0100
Alice Harpa Björgvinsdóttir - [email protected] - 463-0100

FSA Barna- og unglingageðlækningar
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum