Hoppa yfir valmynd
12. desember 2018

Lektor í umhverfisfræðum

Starf lektors í umhverfisfræðum við Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ)

Laust er til umsóknar 100% starf lektors í umhverfisfræðum með áherslu á sjálfbæra landnýtingu við Auðlinda- og umhverfisdeild LbhÍ. 

Starfsskyldur:
Rannsóknir, kennsla og stjórnun við Auðlinda- og umhverfisdeild:
Byggja upp alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir á sérsviði sínu, birta ritrýndar vísindagreinar, afla rannsóknarstyrkja og taka virkan þátt í alþjóðlegu og innlendu samstarfi.  
Leiðbeina nemendum í rannsóknaverkefnum og kenna námskeið á grunn- og framhaldsstigi. Lektor hefur tækifæri til að þróa námskeið í grunn- og framhaldsnámi.
Taka virkan þátt í störfum deildar eftir því sem þörf krefur.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Doktorspróf í plöntuvistfræði, vistkerfisfræði, vistfræði landnýtingar, vistþjónustu, jarðvegsfræði eða öðrum greinum er nýtast við starfið. 
Góð tölfræðikunnátta og geta til að vinna úr viðamiklum gögnum er kostur. 
Þekking og reynsla af rannsóknum er tengjast sjálfbærni og landnýtingu, þ.m.t. af notkun landupplýsingakerfa, er æskileg.
Umsækjandi hafi kynnt rannsóknir sínar á viðurkenndum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn í þeim efnum. 
Reynsla af kennslu og geta og vilji til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu.
Aðild að rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknastyrkja í samvinnu við aðra.
Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum.
Íslenskukunnátta er æskileg.

Upphafleg ráðning verður til fimm ára í samræmi við lög um opinbera háskóla nr. 85/2008.  Að þeim tíma liðnum verður tekin ákvörðun um framhaldið.  Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og eigi síðar en 1. maí, 2019. Athygli er vakin á því að samkvæmt reglum LbhÍ er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors strax við nýráðningu ef umsækjandi uppfyllir viðkomandi hæfnisviðmið.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um nýráðningar og framgang akademískra starfsmanna við Landbúnaðarháskóla Íslands frá 20. september 2012.

Kennsla í grunnnámi við LbhÍ fer að jafnaði fram á íslensku í samræmi við málstefnu skólans. Ef móðurmál viðkomandi er ekki íslenska er ætlast til að hann hafi öðlast næga færni til að nota íslensku við kennslu innan þriggja ára frá upphafi starfs. 

Meginstarfsstöðvar LbhÍ eru þrjár: að Hvanneyri í Borgarfirði, á Keldnaholti í Reykjavík og að Reykjum í Ölfusi. Kennsla sú sem fellur undir umrætt starf fer fram að Hvanneyri og/eða Keldnaholti.

Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við Snorra Baldursson, deildarforseta Auðlinda- og umhverfisdeildar í síma +433 5000 eða með tölvupósti ([email protected])

Umsóknarfrestur er til 21. janúar 2019. Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskóla Íslands b/t Arna Garðarsdóttir Ásgarði – 311 Hvanneyri eða í tölvupósti [email protected]. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið, kynningarbréf þar sem m.a. koma fram upplýsingar um samskiptahæfni umsækjanda, rannsóknaráherslur og hugmyndir um kennsluaðferðir/þróun þekkingarmiðlunar á sviðinu. 

Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Auglýsing getur gilt í allt að sex mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum