Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2019

Móttökuritari - Djúpivogur - SUMARAFLEYSING 2019

Móttökuritari - Djúpivogur - heilsugæsla - SUMARAFLEYSING 2019
 
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í sumarafleysingu á heilsugæsluna á Djúpavogi. 

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun og vinna með afgreiðslukerfi við móttöku skjólstæðinga heilsugæslunnar. Daglegt uppgjör sjóðvéla. Afhending lyfjapantana. Húsumsjón og þrif á heilsugæslustöðinni.

Hæfnikröfur
Stúdentspróf er æskilegt. 
Þekking og vald á að vinna upplýsingar á tölvutæku formi, almenn ökuréttindi, kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli, tölulæsi og færni í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Gild almenn ökuréttindi.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. 
Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. 

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2019

Nánari upplýsingar veitir
Emil Sigurjónsson - [email protected] - 470-3053 & 895-2488

HSA Djúpivogur heilsugæsla
Eyjaland 2
765 Djúpivogur


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum