Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Reglugerð um rafrettur til umsagnar: varðar merkingar umbúða, upplýsingaefni o.fl.

Samráðsgátt - opið samráð við almenning - mynd

Reglugerð um merkingar á umbúðum rafrettna og áfyllinga og efni upplýsingabæklings sem fylgja skal rafrettum og áfyllingum hefur verið birt til umsagnar. Umsagnarfrestur er til 13. febrúar næstkomandi.

Í reglugerðinni er fjallað um merkingar á umbúðum rafrettna og áfyllinga og efni upplýsingabæklings sem fylgja skal slíkum vörum. Lagastoð reglugerðarinnar er að finna í 2. mgr. 16. gr. laga nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum