Hoppa yfir valmynd
5. febrúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Stefna um rafrænar lyfjaupplýsingar til umsagnar hjá Lyfjastofnun Evrópu

Áformað er að samræma upplýsingar um lyf á Evrópska efnahagssvæðisins og hefja notkun rafrænna fylgiseðla. Um þetta er m.a. fjallað í drögum að stefnu um rafrænar lyfjaupplýsingar sem birt hefur verið til umsagnar á vef Lyfjastofnunar Evrópu. Umsagnarfrestur er til 31. júlí næstkomandi.

Stefnudrögin eru birt í samráðsgátt  á vegum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), forstjóra evrópskra lyfjastofnana (HMA) og Framkvæmdastjórnar ESB , þar sem hagsmunaaðlium og almenningi er gefinn kostur á að segja álit sitt á þeim. Stefnan á einungis við um lyf fyrir menn.

Hverju lyfi sem hefur markaðsleyfi á EES svæðinu fylgja upplýsingar um lyfið og notkun þess, annars vegar upplýsingar ætlaðar notandanum, hins vegar sértækari upplýsingar fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Upplýsingar til notandans hafa fylgt lyfinu sem blöðungur í pakkningu þess, en tölvutæknin býður upp á að þessum upplýsingum verði dreift með einfaldari og ódýrari hætti. Slíkri dreifingu fylgir jafnframt meira öryggi þar sem auðveldara er að uppfæra upplýsingarnar þegar þess gerist þörf og fámennari málsvæði fá aukna möguleika á að fá lyfjaupplýsingar á sínu móðurmáli.

Fjallað var um innleiðingu rafrænna fylgiseðla með lyfjum í tilkynningu velferðarráðuneytisins í september síðastliðnum. Þá var samþykkt á fundi í stýrinefnd Evrópuráðsins um lyf og lyfjafræðilega þjónustu tillaga Íslands sem borin var fram fyrir hönd heilbrigðisráðherra um tilraunaverkefni á þessu sviði. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum og vísað til sérfræðinganefndar Evrópuráðsins um gæða- og öryggisstaðla lyfja og lyfjafræðilega umsjá til nánari umfjöllunar og afgreiðslu.

Rafrænir fylgiseðlar taldir stuðla að auknu öryggi og betri heilsu almennings

Nánari upplýsingar um drög að stefnu um rafrænar lyfjaupplýsingar má lesa í tilkynningu á vef Lyfjastofnunar. Þar segir meðal annars: „Meginatriði draganna sem fyrir liggja er það sjónarmið að samræma upplýsingar um lyf um allt EES-svæðið. Sett eru fram ýmis rök fyrir margvíslegum ávinningi af notkun rafrænna fylgiseðla, en þeir eru hugsaðir eru sem viðbót við prentuðu útgáfuna, a.m.k. framan af. Rafvæðing þessara upplýsinga myndi stuðla að betri heilsu almennings með auknu öryggi. Rafrænir fylgiseðlar eru hluti af síaukinni tölvuvæðingu heilbrigðiskerfanna, bæði í Evrópu og á heimsvísu.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum