Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2019

Hjúkrunarfræðingur/ dagvinna á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga

Hjúkrunarfræðingur/ dagvinna á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga

Dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga við Hringbraut óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing með áhuga á krabbameinshjúkrun. Deildin heyrir undir lyflækningasvið og starfa þar um 25 hjúkrunarfræðingar sem eru með fjölbreytta menntun og reynslu að baki en fjöldi starfsmanna er um 40 manns. Deildin þjónar einstaklingum með blóðsjúkdóma og krabbamein. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi, unnið er í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans.

Í boði er góð einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Einstakt tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Við bjóðum jafnt velkomna hjúkrunarfræðinga sem búa yfir þekkingu og reynslu sem og nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga. Velkomið er að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafi samband við Þórunni deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Ber ábyrgð á hjúkrun, ráðgjöf og stuðningi til einstaklinga með krabbamein og blóðsjúkdóma og aðstandenda þeirra
» Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur LSH
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
» Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu verkefna á deild

Hæfnikröfur
» Góð samskiptahæfni
» Faglegur metnaður og áhugi á krabbameinshjúkrun
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Unnið er í dagvinnu, æskilegt að umsækjandi geti hafið starf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2019

Nánari upplýsingar veitir
Þórunn Sævarsdóttir - [email protected] - 825 3523
Stella María Óladóttir - [email protected] - 543 6103

Landspítali
Dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum