Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2019

Lífeindafræðingur við hjartaómun

Lífeindafræðingur við hjartaómun á hjartarannsóknarstofu Landspítala

Við hjartaómun á lyflækningasviði Landspítala er laust til umsóknar starf lífeindafræðings frá 15. mars 2019 eða eftir samkomulagi. Vinnutími er frá kl. 8-16 og mögulegt er að vinna að mastersverkefni samhliða starfi. Reynsla af hjartaómun er æskileg en vel kemur til greina að þjálfa lífeindafræðing sem áhuga hefur á verkefninu. 

Á hjartarannsóknarstofu starfa um 20 manns í öflugu þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við hjartasérfræðinga. Þar eru m.a. gerð áreynslupróf, Holterrannsóknir, ómskoðanir á hjarta og gangráðseftirlit. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Ómanir af hjarta og varðveisla gagna þar að lútandi
» Úrvinnsla og túlkun niðurstaðna í samvinnu við hjartalækna
» Þátttaka í öðrum verkefnum á hjartarannsókn eftir nánari ákvörðun stjórnanda

Hæfnikröfur
» Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
» Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
» Þekking og reynsla af hjartaómun æskileg
» Góð íslenskukunnátta skilyrði
» Íslenskt starfsleyfi lífeindafræðings

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2019

Nánari upplýsingar veitir
Davíð Ottó Arnar - [email protected] - 543 1000
Jóhanna S Gunnlaugsdóttir - [email protected] - 543 6158

Landspítali
Hjartarannsóknarstofa
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum