Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2019

Sérfræðilæknir í hjartalækningum

Sérfræðilæknir í hjartalækningum
 
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í hjartalækningum. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. apríl 2019 eða eftir samkomulagi. 

Við sérgreinina starfa um 25 sérfræðilæknar í öflugu þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans. Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd við sjúklinga okkar. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna á legu-, dag- og göngudeildum ásamt vaktþjónustu við hjartadeild 
» Vinna við almenn störf innan hjartalækninga
» Vinna við samráðskvaðningar á aðrar deildir Landspítala
» Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni og forstöðumann fræðigreinarinnar, hjartalæknisfræði, innan Háskóla Íslands
» Þátttaka í viðfangsefnum almennra lyflækninga

Hæfnikröfur
» Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum og hjartalækningum
» Breið þekking og reynsla í almennum hjartalækningum 
» Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í kjarasamningi lækna og ríkisins 2015. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.

Mat stöðunefndar læknaráðs Landspítala byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða við umsækjendur og ákvörðun um ráðningu í starfið byggir einnig á þeim.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar í almenna umsókn og senda sem viðhengi, en ítarlegri upplýsingar fyllist út í umsókn fyrir læknastöðu, sjá slóð hér fyrir neðan:

Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað Embættis landlæknis

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2019

Nánari upplýsingar veitir
Davíð Ottó Arnar - [email protected] - 824 5704

LSH Hjartalækningar
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum