Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2019

Sjúkraliði/ dagvinna á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga

Sjúkraliði/ dagvinna á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga

Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga við Hringbraut. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs. Starfshlutfall er 100 %, unnið er í dagvinnu, virka daga. 

Deildin er dag- og göngudeild fyrir sjúklinga með blóðsjúkdóma og krabbamein. Á deildinni starfar 35 manna þverfaglegur hópur. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Áhugasamir hafið samband við Þórunni deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Aðstoð við innskrift sjúklinga
» Sér um pantanir og frágang á vörum fyrir deildina, m.a. pantanir á hjúkrunarlager
» Umsjón með skoli
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Góð samskiptahæfni
» Faglegur metnaður og áhugi á krabbameinshjúkrun
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 15. mars 2019 eða eftir samkomulagi. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2019

Nánari upplýsingar veitir
Þórunn Sævarsdóttir - [email protected] - 825 3523
Stella María Óladóttir - [email protected] - 620 1405

Landspítali
Dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum