Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2019 Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra á ráðherrafundi í Búkarest

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra og Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytis sátu fund ráðherraráðs ESB. - mynd

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra sótti óformlegan ráðherrafundi í Búkarest dagana 6.-8. febrúar en Rúmenía tók við formennsku í ráðherraráði ESB þann 1. janúar sl. Á fundinum ræddu ráðherrar niðurstöður nefndar um hryðjuverkaógn sem Evrópuráðið skipaði í júlí 2016, mikilvægi lögreglusamvinnu aðildarríkja þegar kemur að netrannsóknum, málefni flóttamanna auk þess sem Schengen-samstarfið í heild og styrking þess var rædd. Ráðherrarnir heimsóttu einnig landamærastofnun Rúmeníu og fengu kynningu á störfum hennar. Rúmenía er ekki aðili að Schengen-samstarfinu en vinnur að aðild með því að efla eftirlit á ytri landamærum sem liggja að Serbíu, Úkraínu og Svartahafinu.

Dómsmálaráðherra lagði áherslu á mikilvægi lögreglusamvinnu innan Evrópu þegar kemur að netrannsóknum og lýsti jafnframt yfir áhuga á því að koma á starfsmannaskiptum á þessu tiltekna sviði innan lögreglunnar svo ríki geti miðlað sérþekkingu og reynslu sín á milli.  

  • Forstjóri rúmensku landamærastofnunar kynnti starfsemina fyrir ráðherrunum. - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum