Hoppa yfir valmynd
16. febrúar 2019

Hjúkrunarfræðingur - Smitsjúkdómadeild

Hjúkrunarfræðingur - Smitsjúkdómadeild

Viltu öðlast fjölþætta reynslu? Við óskum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á smitsjúkdómadeild A7 á lyflækningasviði. Við bjóðum nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingi jafnt sem reynslubolta velkominn í okkar hóp. Góður starfsandi ríkir á deildinni og er unnið markvisst að faglegri þróun og fögnum við nýjum hugmyndum. 

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala (sjá myndskeið undir frekari uppl.).

Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild, ætluð sjúklingum með bráð lyflæknisvandamál. Deildin sérhæfir sig í smitsjúkdómum en sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Á deildinni starfa um 70 manns í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. 

Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Velkomið að heimsækja okkur, áhugasamir hafið samband við Stefaníu, deildarstjóra.

Á deildinni taka flestir hjúkrunarfræðingar þátt í tilraunaverkefni innan Landspítala um sveigjanlegra vinnufyrirkomulag hjúkrunarfræðinga í vaktavinnu, með undirbúnings- og frágangstíma og viðbragðsvöktum sem hluta af vinnuskyldu. Markmið verkefnisins er að bæta mönnun og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á sólarhringsdeildum í bráðaþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
» Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
» Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
» Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
» Hæfni og geta til að starfa í teymi
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Unnið er í vaktavinnu sem hefur marga kosti umfram dagvinnu. Starfið er laust 15. mars 2019 eða eftir nánara samkomulagi. 
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað. 

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Um er að ræða 4 stöðugildi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Handleiðsla og fræðsla á starfsþróunarári (myndskeið)

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.03.2019

Nánari upplýsingar veitir
Stefanía Arnardóttir - [email protected] - 825 3688
Þórdís Ágústa Ingólfsdóttir - [email protected] - 824 5480

Landspítali
Smitsjúkdómadeild
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum