Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2019 Forsætisráðuneytið

Málþing um stafrænt kynferðisofbeldi

Stýrihópur um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðisofbeldi og Háskólinn í Reykjavík standa fyrir málþingi um stafrænt kynferðisofbeldi mánudaginn 18. febrúar 2019 kl. 14 - 17 í húsnæði HR í Nauthólsvík, stofu M103.

Dagskrá

14.00 – 14.10 Setning

14.10 – 14.40 Vernd gegn stafrænu kynferðisofbeldi
María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur og doktorsnemi við Sussex háskóla í Bretlandi

14.40 – 15.00 Heimfærsla stafræns kynferðisofbeldis til refsiákvæða og dómaframkvæmd
Kolbrún Benediksdóttir varahéraðssaksóknari

15.00 - 15.15 Frumvarp um stafrænt kynferðisofbeldi
Helgi Hrafn Gunnarsson, alþingismaður og fyrsti flutningsmaður frumvarpsins

15.15 – 15.30 Kaffihlé

15.30 – 15.45 Nektarmyndsendingar unglinga á samskiptamiðlum. Niðurstöður úr könnun Rannsókna og greiningar, Ungt fólk 2018.
Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir dósent og dr. Rannveig Sigurvinsdóttir lektor við sálfræðisvið HR

15.45 – 16.00 Stafrænt ofbeldi gegn konum á Norðurlöndum
Dr. Ásta Jóhannsdóttir, nýdoktor í fötlunarfræðum

16.00 – 16.15 Myndin af mér
Brynhildur Björnsdóttir leikstjóri

16.15 – 17.00 Pallborðsumræður

Fundarstjóri: Halla Gunnarsdóttir, formaður stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðisofbeldi og ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum