Hoppa yfir valmynd
5. mars 2019 Utanríkisráðuneytið

Ráðherra stýrði árlegum samráðsfundi NB8 ríkjanna með forseta Alþjóðabankans

Ráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja ásamt Kristalinu Georgieva, starfandi forseta Alþjóðabankans. - myndValgarður Gíslason

Jarðhiti, málefni hafsins, jafnréttismál og mannréttindi voru til umræðu á tvíhliða fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Kristalina Georgieva, starfandi forseta Alþjóðabankans í dag. Einnig var rætt um fyrirhugaða stjórnarsetu Íslands í bankanum fyrir hönd kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja til næstu tveggja ára.

Í dag var að auki haldinn fundur ráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í kjördæmi Alþjóðabankans með Georgieva. Um er að ræða árlegan samráðsfund þar sem tækifæri gefst til að ræða þau mál sem efst eru á baugi í starfi bankans. Guðlaugur Þór stýrði fundinum. 

Á fundinum var rætt um hvernig versnandi horfur í alþjóða efnahagsmálum, aukinn skuldavandi þróunarríkja og áskoranir í loftslagsmálum gera ríkjum heims erfiðara að ná markmiðum Alþjóðabankans um að útrýma sárafátækt fyrir árið 2030. Einnig var rætt um málefni Alþjóðaframfarastofnunarinnar, sem er ein af stofnunum Alþjóðabankahópsins, en hún veitir lán og styrki til allra fátækustu ríkja heims. Nú standa yfir viðræður um endurfjármögnun Alþjóðaframfarastofnunarinnar til næstu þriggja ára.

„Það er mjög mikilvægt fyrir kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja að eiga fund sem þennan með forseta Alþjóðabankans til að koma áherslum okkar að varðandi helstu stefnumál bankans. Einnig er ánægjulegt að finna að framlag Íslands til bankans er mikils metið og bankinn óskar raunar eftir nánara samstarfi við íslensk stjórnvöld, meðal annars varðandi nýtingu á jarðvarma í þróunarlöndunum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. 

Kristalina Georgieva, starfandi forseti Alþjóðabankans, kom til landsins í gær, mánudag, og tók meðal annars þátt í málstofu sem utanríkisráðuneytið hélt í samstarfi við bankann um lagalega stöðu kvenna á vinnumarkaði. Kristín A. Árnadóttir sendiherra jafnréttismála var fundarstjóri og stýrði jafnframt pallborðsumræðum í lok málstofunnar. Þátttakendur voru Kristalina Georgieva, Guðlaugur Þór Þórðarson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Ulla Tørnæs, þróunarmálaráðherra Danmerkur.

Horfa má á málstofuna í heild sinni hér að neðan:

 
  • Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Kristalina Georgieva, starfandi forseti Alþjóðabankans. - mynd
  • Utanríkisráðherra tók þátt í pallborðsumræðum í málstofu sem utanríkisráðuneytið hélt í samstarfi við Alþjóðabankann í gær. Hér er hann ásamt Ullu Tørnæs, þróunarmálaráðherra Danmerkur, og Kristalinu Georgieva.  - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
5. Jafnrétti kynjanna
7. Sjálfbær orka
1 Engin fátækt

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum