Hoppa yfir valmynd
9. mars 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Mikilvægt tungumálasamstarf: stuðningur við dönskukennslu

Samstarfssamningur íslenskra og danskra stjórnvalda um dönskukennslu hér á landi var endurnýjaður í gær á fundi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Merete Riisager menntamálaráðherra Danmerkur í Kaupmannahöfn. Meginmarkmið samningsins er að styðja við dönskukennslu hér á landi með sérstakri áherslu á munnlega færni, að miðla danskri menningu í íslensku menntakerfi og auka áhuga á dönsku tungumáli og vitund um mikilvægi dansks málskilnings fyrir Íslendinga.

„Samstarf þetta hefur verið einkar farsælt fyrir okkur Íslendinga og til þess fallið að styrkja mjög tengsl milli landanna. Tungumálafærni er okkur mikilvæg, dönskunámið veitir líka grunn fyrir önnur norræn tungumál og er í raun mikilvægur liður í því að við getum tekið virkan þátt í norrænu samstarfi. Danmörk er meðal okkar mikilvægustu viðskiptalanda og margar stofnarnir hér eru í nánum tengslum við danskar systurstofnanir sínar. Ég er þakklát því hugsjónafólki sem kom þessu faglega samstarfi á legg fyrir rúmum 20 árum, það var mikið heillaspor og það er komið góð reynsla á útfærslu þess,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Framlag Dana stendur meðal annars straum af starfi dansks lektors við Menntavísindasvið HÍ, laun tveggja sendikennara sem starfa við íslenska grunnskóla, endurmenntunarnámskeiðum fyrir dönskukennara í grunn- og framhaldsskólum og námsferðir íslenskra dönskunema til Danmerkur auk annarrar starfsemi tengda verkefninu. Framlag Íslendinga fjármagnar umsjón og skipulagningu með dvöl sendikennara og húsnæði lektors ásamt stuðningi við sveitarfélög vegna verkefnisins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum