Hoppa yfir valmynd
14. mars 2019

Héraðsfulltrúi - Sauðárkrókur

Starfsmaður á héraðssetrið á Sauðárkróki

Landgræðslan óskar eftir að ráða héraðsfulltrúa með aðalstarfssvæði á Norðurlandi vestra. Starfsstöð er á héraðssetri Landgræðslunnar á Sauðárkróki. Héraðsfulltrúinn vinnur að jarðvegs- og gróðurvernd og uppbyggingu vistkerfa m.a. með því að stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra. Starfsmaðurinn þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í þróun starfsins og breytingum sem kunna að verða á starfinu og vinnustaðnum. 

Landgræðslan er þekkingar- og þjónustustofnun. Markmið hennar eru verndun gróðurs og jarðvegs og bætt landgæði. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 155/2018. 

Helstu verkefni og ábyrgð
- Öflun og skráning upplýsinga, ráðgjöf og eftirlit með verkefnum í Bændur græða landið, Landbótasjóði Landgræðslunnar og öðrum landgræðsluverkefnum 
- Áætlanagerð og umsjón landgræðsluverkefna á starfssvæðinu
- Vinna við verkefni um endurheimt votlendis
- Vöktun á ástandi gróðurs og jarðvegs og fylgjast með að lögum um landgræðslu sé framfylgt
- Aðstoð við gerð beitar- og uppgræðsluáætlana fyrir einstakar bújarðir og stærri svæði
- Skráning landgræðsluaðgerða og eftirlit með árangri þeirra
- Fræðsla og ráðgjöf til sveitarstjórna, landnotenda, skóla og almennings

Hæfnikröfur
- Krafist er BSc-prófs í náttúruvísindum, t.d. landnýtingu, beitarfræðum eða umhverfisfræðum.
- Almenn þekking eða reynsla af landbúnaði og gott landlæsi er kostur.
- Skipulagshæfni, sjálfstæði, sveigjanleiki og góð samstarfshæfni.
- Góð kunnátta í notkun tölvu og upplýsingatækni. 
- Gott vald á íslensku, talaðri og ritaðri.
- Þekking og reynsla af landgræðslustarfi er kostur.
- Þekking og reynsla af notkun landupplýsingakerfa er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Megin starfssvæðið er Norðurland vestra og starfinu geta fylgt talsverð ferðalög. Starfið hentar bæði konum og körlum. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf 1. júní. 

Umsókn skal fylla út rafrænt á vef Starfatorgs eða vef Landgræðslunnar, land.is. Ferilskrá og afrit af prófskírteini skal fylgja. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2019

Nánari upplýsingar veitir
Gustav Magnús Ásbjörnsson - [email protected] - 488 3000
Bjarni Pétur Maronsson - [email protected] - 488 3000


Landgræðsla ríkisins
Landverndarsvið
Gunnarsholti
851 Hella


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum