Hoppa yfir valmynd
14. mars 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Kvikmyndastefna í mótun

Verkefnahópur hefur verið skipaður á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins til þess að vinna að gerð kvikmyndastefnu sem gilda á frá 2020-2030. Verður það í fyrsta sinn sem stjórnvöld móta heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun á grunni hennar, sem nær yfir hlut kvikmynda í menningu þjóðarinnar, menntun í kvikmyndagerð á öllum skólastigum, miðlun íslensks kvikmyndaefnis og stuðning við framleiðslu kvikmynda. Hópurinn mun vinna náið með hagsmunaaðilum í kvikmyndagerð á Íslandi við mótun stefnunnar en ráðgert er að hópurinn skili tillögum sínum fyrir júnílok á þessu ári.

Verkefnahópinn skipa:

Dagur Kári Pétursson
leikstjóri og formaður Samtaka kvikmyndaleikstjóra (formaður starfshópsins)

Ása Helga Hjörleifsdóttir
leikstjóri og félagi í WIFT - Konur í kvikmyndum og sjónvarpi á Íslandi

Áslaug María Friðriksdóttir

formaður Kvikmyndaráðs

Baldur Sigmundsson
sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

Einar Karl Birgisson
framkvæmdastjóri

Friðrik Þór Friðriksson

kvikmyndaleikstjóri og fulltrúi Kvikmyndaráðs

Fríða Björk Ingvarsdóttir
rektor Listaháskóla Íslands

Grímar Jónsson
framleiðandi (varaformaður starfshópsins

Hanna Katrín Friðriksson
alþingismaður

Jóna Pálsdóttir
sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti

Kristinn Þórðarson
formaður Samtaka íslenskra kvikmyndaframleiðenda og fulltrúi Samtaka iðnaðarins

Margrét Örnólfsdóttir
formaður Félags leikskálda og handritshöfunda

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum