Hoppa yfir valmynd
14. mars 2019

Byggingaverkfræðingur eða byggingatækniræðingur - Veghönnun

 
VEGHÖNNUN

Umsóknarfrestur framlengdur til og með 8. apríl nk.

Vegagerðin auglýsir eftir byggingarverkfræðingi eða byggingartæknifræðingi á hönnunardeild. Um er að ræða fullt starf, við hönnun umferðarmannvirkja. 

Á hönnunardeild vinna um 18 manns við ýmis hönnunar-, þróunar- og rannsóknarverkefni, sem tengjast umferðarmannvirkjum. 

Við erum að leita eftir verk- eða tæknifræðingi sem hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni á sínu fagsviði frá frumstigum hönnunar til framkvæmda. Fjölmörg verkefni eru framundan varðandi uppbyggingu vegakerfisins á Íslandi. Um er að ræða spennandi starf við hönnun vega í krefjandi umhverfi, um fjallvegi, firði og í þéttbýli. 

Starfssvið
Vinna við hönnun vega, umsjón og þáttaka í þróun veghönnunarkerfa Vegagerðarinnar , verkefnastjórn hönnunar, umferðaröryggisrýni auk þátttöku í rannsóknarverkefnum tengdum umferðarmannvirkjum. 

Menntunar- og hæfniskröfur 
Byggingarverkfræðingur, M.Sc. eða byggingartæknifræðingur B.Sc
Þekking og reynsla í notkun teikni- og hönnunarforrita
Þekking og reynsla í notkun Microstation og Inroads er kostur
Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
Frumkvæði og faglegur metnaður
Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
Góð íslenskukunnátta
Kunnátta í ensku og einhverju norðurlandamáli

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. 

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 8. april 2019. Umsóknir berist á netfangið [email protected].  

Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem gerð eru til starfsins, þar með talið menntunar- og starfsferilsskrá. 

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður hönnunardeildar ([email protected]) í síma 522 1000.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum