Hoppa yfir valmynd
15. mars 2019 Dómsmálaráðuneytið

Ellefu dómarar Landsréttar dæma áfram

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Forseti Landsréttar hefur sent frá sér tilkynningu í tilefni af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu.

Tilkynningin er svohljóðandi:

Í tilefni af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn Íslandi frá 12. mars síðastliðnum var á fundi dómara Landsréttar sama dag ákveðið að fresta öllum þinghöldum sem boðað hafði verið til í þessari viku.

Frá og með mánudeginum 18. mars næstkomandi mun Landsréttur starfa samkvæmt breyttri dagskrá sem birt verður á heimasíðu réttarins.

 

Eftirtaldir dómarar Landsréttar munu sinna dómstörfum:

Aðalsteinn E. Jónasson

Davíð Þór Björgvinsson

Hervör Þorvaldsdóttir

Ingveldur Einarsdóttir

Jóhannes Sigurðsson

Kristbjörg Stephensen

Oddný Mjöll Arnardóttir

Ragnheiður Harðardóttir

Sigurður Tómas Magnússon

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson

Þorgeir Ingi Njálsson

 

Landsréttardómararnir Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason og Jón Finnbjörnsson munu að svo stöddu ekki taka þátt í dómstörfum.

Landsréttardómarinn Ragnheiður Bragadóttir er í námsleyfi frá 1. janúar til 30. júní 2019.

 

Kópavogi, 15. mars 2019

Hervör Þorvaldsdóttir, forseti Landsréttar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum