Hoppa yfir valmynd
29. mars 2019 Matvælaráðuneytið

Kristján Þór fundaði með framkvæmdastjóra ESB á sviði heilbrigðis og matvæla

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, átti í gær fund með Vytenis Andriukaitis, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins á sviði heilbrigðis og matvæla. Megintilgangur fundarins var að ræða stöðu mála er varðar innflutning á ófrystu kjöti, eggjum og ógerilsneyddum mjólkurafurðum til Íslands og dóma EFTA-dómstólsins og Hæstaréttar Íslands sem hafa komist að þeirri niðurstöðu að núgildandi leyfisveitingakerfi og frystiskylda brjóti gegn skuldbindingum Íslands gagnvart EES-samningnum.

Sömu kröfur til innflutts og innlendrar framleiðslu

Kristján Þór vísaði á fundinum til þess að frumvarp um að afnema leyfisveitingakerfið hefði verið lagt fram á Alþingi. Þá gerði hann grein fyrir þeim ráðstöfunum sem íslensk stjórnvöld munu grípa til samhliða afnámi leyfisveitingakerfisins, m.a. þá kröfu að innflutt alifuglakjöt fullnægi sömu kröfum og gerð hefur verið til innlendrar framleiðslu undanfarna tvo áratugi. Í þeirri kröfu felist að framleiðandi/innflytjandi sýni fram á með vottorði eða öðrum hætti að ómeðhöndlað alifuglakjöt sé ekki mengað af kampýlóbakter. Með þessu ætli íslensk stjórnvöld að tryggja sterka stöðu Íslands þegar kemur að vörnum gegn kampýlóbakter-sýkingum.

Styrkja samstarf Íslands og Evrópusambandsins

Kristján Þór vísaði til þess á fundinum að sjúkdómastaða íslenskra búfjárstofna sé sérlega góð í samanburði við önnur ríki. Jafnframt gerði hann grein fyrir átaki íslenskra stjórnvalda til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi sem hófst í febrúar sl. Þá sammæltust Kristján Þór og Vytenis Andriukaitis um að styrkja samstarf Íslands og Evrópusambandsins varðandi aðgerðir gegn bæði kampýlóbakter og sýklalyfjaónæmum bakteríum.

Kristján Þór fundaði einnig með fulltrúum frá Eftirlitsstofnun EFTA um fyrrgreint frumvarp og kynnti þær ráðstafanir sem gripið verður til.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: „Það hefur verið forgangsverkefni stjórnvalda í þessu máli að standa við alþjóðlegar skuldbindingar en á sama tíma að tryggja öryggi matvæla og dýraheilbrigði. Það er jafnframt mikilvægt að gera Evrópusambandinu og Eftirlitsstofnun EFTA grein fyrir þeim ráðstöfunum sem við ætlum að grípa til, enda allra hagur að við getum átt uppbyggilegt samstarf um farsæla lausn þessa máls. Á þessum fundum í gær skynjaði ég skilning á stöðu Íslands og er bjartsýnn á næstu skref.“

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum