Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Heiða Björg Pálmadóttir skipuð í embætti forstjóra Barnaverndarstofu

Heiða Björg Pálmadóttir hefur verið skipuð í embætti forstjóra Barnaverndarstofu, en hún hefur starfað sem settur forstjóri frá 1. mars 2018. Heiða Björg er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands frá árinu 2004 og hlaut réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður árið 2008.

Heiða Björg hefur stundað doktorsnám við lagadeild Háskólans í Reykjavík frá 2013. Doktorsverkefni hennar lýtur að samspili málsmeðferðarreglna stjórnsýsluréttar annars vegar og réttar barna til verndar og umönnunar á friðhelgi fjölskyldunnar hins vegar. Áætluð námslok eru í ár.

Barnaverndarstofa er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra. Hún annast stjórnsýslu á því sviði sem barnaverndarlög ná til. Heiða Björg hefur víðtæka reynslu á sviði barnaverndar. Hún hefur starfað sem yfirlögfræðingur Barnaverndarstofu frá ársbyrjun 2009 og verið settur forstjóri stofunnar í rúmt ár. Auk þess sat hún í barnaverndarnefnd Reykjavíkur frá 2006-2009.

Heiða Björg hefur sömuleiðis víðtæka þekkingu og starfsreynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu. Frá 2004 starfaði hún sem lögfræðingur, fyrst hjá Tryggingastofnun og síðar hjá umboðsmanni Alþingis áður en hún tók við starfi yfirlögfræðings hjá Barnaverndarstofu. Þá hefur Heiða Björg sinnt stundakennslu í stjórnsýslurétti við Háskólann í Reykjavík og í félagsmála- og fjölskyldurétti við Háskóla Íslands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum