Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2019

Ljósmóðir á fæðingarvakt

Ljósmóðir á fæðingarvakt Landspítala

Laus er til umsóknar staða ljósmóður á fæðingarvakt 23B á kvenna- og barnasviði Landspítala. Á fæðingarvaktinni er veitt þjónusta við konur í eðlilegri fæðingu auk þjónustu við konur með áhættuþætti sem þurfa sérhæft eftirlit í fæðingu.

Á deildinni starfa um 75 manns og er fagmennska og teymisvinna höfð að leiðarljósi. Um er að ræða vaktavinnu í 60% starfshlutfalli. Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2019 eða eftir samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Umönnun kvenna í fæðingu og umönnun nýbura
» Símaráðgjöf og móttaka kvenna í fæðingu og kvenna með bráð vandamál á síðari hluta meðgöngu
» Þátttaka í faglegri þróun umönnunar sem veitt er á deildinni
» Klínísk kennsla ljósmóðurnema og læknanema á deild

Hæfnikröfur
» Íslenskt ljósmóðurleyfi
» Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi 
» Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
» Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
» Reynsla af ljósmóðurstörfum er kostur
» Reynsla af hjúkrunarstörfum er kostur

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2019

Nánari upplýsingar veitir
Anna Sigríður Vernharðsdóttir - [email protected] - 824 5902


Landspítali
Fæðingarvakt
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum