Hoppa yfir valmynd
9. maí 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjármála- og efnahagsráðherra á ársfundi Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu

Fjármála- og efnahagsráðherra á fundi EBRD í Sarajevó.  - myndFlickr-síða EBRD

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók þátt í ársfundi Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) sem haldinn var í Sarajevo í Bosníu og Hersegóvínu 7.-9. maí. Bjarni hefur verið varaformaður eigendanefndar bankans síðastliðið ár.

Á fundinum var hafinn undirbúningur á stefnumótun bankans til næstu ára sem snýst m.a. um með hvaða hætti bankinn getur dýpkað hlutverk sitt í þeim löndum sem hann starfar. Í framhaldi verður metið hvort fýsilegt sé að bankinn feti sig inn á ný markaðssvæði, m.a. í Afríku. Þetta er 28. ársfundur bankans, sem á sínum tíma var stofnaður til að styðja við efnahagsþróun og fjárfestingar í ríkjum Austur-Evrópu.

Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu er alþjóðleg fjármálastofnun sem fjármagnar verkefni á vegum einkafyrirtækja og opinberra aðila. Starfsemi bankans nær til yfir 30 landa - frá Austur-Evrópu til Mið-Asíu og Suður- og Austur-Miðjarðarhafs. Sérstök áhersla er lögð á þróun og fjármögnun verkefna á sviði endurnýjanlegrar orku og umhverfisvænna orkugjafa. Bankinn fjárfestir árlega fyrir um 10 milljarða evra í fjölbreyttum verkefnum, en um 80% þeirra eru unnin í samvinnu við einkaaðila.

Á vegum bankans eru tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að starfa sem ráðgjafar í verkefnum, m.a á sviði orkumála og þá er hægt að vinna með beinum hætti með bankanum að fjárfestingum á starfssvæðum hans.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum