Hoppa yfir valmynd
20. maí 2019

Veiðieftirlit - Höfn í Hornafirði

Vilt þú hjálpa okkur að gæta hagsmuna þjóðarinnar?

Frestur framlengdur til og með 25. júní nk.

Fiskistofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan starfsmann í veiðieftirlit á Höfn í Hornafirði.
Mannauður Fiskistofu er grunnstoðin í starfsemi hennar og er lögð mikil áhersla á starfsþróun, teymisvinnu og þekkingarmiðlun.

Starfandi veiðieftirlitsmenn eru nær eingöngu karlar og er því athygli kvenna sérstaklega vakin á starfinu í þeim tilgangi að jafna kynjahlutföll í starfsgreininni, sbr. 3. mgr. 26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit á sjó, en í því felst m.a. lengdarmæling á fiski og tillögugerð um lokanir veiðisvæða, eftirlit með aflasamsetningu, veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og brottkasti afla. Þá fylgjast veiðieftirlitsmenn einnig með því að afladagbækur séu rétt útfylltar og séu í samræmi við veiðar og afla um borð. 
- Eftirlit í landi, en það felur m.a. í sér eftirlit með löndun, vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðarfærum og aflasamsetningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með færslu afladagbóka. Eftirlit með löndunum erlendra skipa og úttektir á afurðum vinnsluskipa, eftirlit með lax- og silungsveiði ásamt skrifstofustörfum s.s. skýrslugerð þegar vettvangsstörfum lýkur, að fylgjast með löndunum og skráningum í aflaskráningarkerfi Fiskistofu og öflun gagna vegna brotamála sem upp koma. 

Hæfnikröfur
- Haldgóð reynsla af störfum í sjávarútvegi.
- Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta er áskilin.
- Gott heilsufar sbr. heilsufarskröfur Fiskistofu
- Sjálfstæði, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum.
- Sanngirni og háttvísi.
- Mjög góð hæfni í samskiptum nauðsynleg.
- Menntun sem nýtist í starfi s.s. skipstjórnarréttindi, stúdentspróf eða iðnmenntun æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert.
Ferilskrá á íslensku sem hefur m.a. að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og umsagnaraðila sem og kynningarbréf þar sem hæfni viðkomandi umsækjanda í starfið er rökstudd sendist í gegnum heimasíðu fiskistofu, www.fiskistofa.is

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2019

Nánari upplýsingar veitir
Sævar Guðmundsson - [email protected] - 569 7900
Hildur Ösp Gylfadóttir - [email protected]  


Fiskistofa
Eftirlit á Höfn
Hafnarbraut 27
780 Höfn í Hornafirði


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum