Hoppa yfir valmynd
21. maí 2019

Framhaldsskólakennari í stærðfræði

 


Framhaldsskólakennari í stærðfræði – Fjölbrautaskóli Vesturlands

Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi óskar að ráða framhaldsskólakennara í stærðfræði frá og með 1. ágúst 2019. Um 100% starfshlutfall er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur: 
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi lokið háskólanámi í kennslugrein eða skyldum greinum og námi til kennsluréttinda á framhaldsskólastigi.

Ráðning og kjör:
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn þarf að greina frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti. 

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara, [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2019. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.

Á heimasíðu skólans, www.fva.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum