Hoppa yfir valmynd
22. maí 2019 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra tók við lotukerfi fjölbreytileikans

Lotukerfi fjölbreytileikans - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í upphafsathöfn árvekniátaks um fjölbreytileika í Safnahúsinu á alþjóðlegum degi Sameinuðu þjóðanna um menningarlegan fjölbreytileika.

Þar veitti hún viðtöku lotukerfi fjölbreytileikans sem Viðskiptaráð Íslands hefur unnið í samstarfi við fjölmarga aðila. Lotukerfinu er ætlað að minna á hvað fjölbreytileiki snýst um marga og hvetja til þess að íslenskt samfélag nýti sér styrkinn sem í honum felst, hvort heldur í atvinnulífi, menntakerfi eða hjá hinu opinbera.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Þó að íslenskt samfélag sé orðið mun fjölbreyttara en það var áður eigum við samt langt í land. Fólk er alls konar og samfélag sem gerir ekki aðeins ráð fyrir margbreytileikanum heldur nýtir sér styrkinn sem í honum felst verður gott samfélag.“

Árverknimyndbönd voru einnig ræst á fundinum og barnakór Ísaksskóla tók lagið. Fundurinn var haldinn á vegum Viðskiptaráðs Íslands, í samstarfi við Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
  • barnakór Ísaksskóla - mynd

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum