Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings í innkirtlamóttöku á almennu göngudeildinni á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Staðan er laus frá 15. ágúst n.k. eða eftir samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Inga Margrét Skúladóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur á almennu göngudeildinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka skjólstæðinga á innkirtlamóttöku á göngudeild sjúkrahússins og veita viðeigandi meðferð, upplýsingar og fræðslu.
Eftirlit með inniliggjandi skjólstæðingum og eftirfylgni eftir útskrift, samkvæmt beiðnum.
Ráðgjöf og fræðsla til hjúkrunarfræðinga og annars starfsfólks á deildum um sykursýki og meðferð hennar.
Hæfnikröfur
Umsækjandi skal hafa fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi.
Viðbótarnám í hjúkrun sykursjúkra og reynsla af meðferð sykursjúkra æskileg.
Mikilvægt er að hafa færni í að vinna sjálfstætt og í teymi og hafa hæfileika á sviði samskipta.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.
Starfshlutfall er 40%
Umsóknarfrestur er til og með 11.06.2019
Nánari upplýsingar veitir
Inga Margrét Skúladóttir - [email protected] - 4630100
Hulda Sigríður Ringsted - [email protected] - 4630100
Almenn göngudeild
v/Eyrarlandsveg
603 Akureyri
Smelltu hér til að sækja um starfið