Hoppa yfir valmynd
22. maí 2019

Sjúkraþjálfari í Víðhlíð í Grindavík

Sjúkraþjálfari í Víðhlíð í Grindavík fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara í 20% stöðugildi. Um er að ræða framtíðarstarf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. 

Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraþjálfari sinnir hjúkrunarheimilinu Víðihlíð sem er staðsett í Grindavík. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í öldrunarsjúkraþjálfun en það er ekki skilyrði.

Hæfnikröfur
Sjúkraþjálfari með íslenskt starfsleyfi
Góð íslenskukunnátta
Faglegur metnaður og vandvirkni.
Jákvætt og hlýtt viðmót.
Góð samskiptahæfni.
Sjálfstæði í vinnubrögðum. 
Starfsreynsla er kostur

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á www.hss.is undir Laus störf. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir geta gilt í sex mánuði.

Starfshlutfall er 20%
Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2019

Nánari upplýsingar veitir
Sara Guðmundsdóttir - [email protected] - 422-0629


Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Sjúkraþjálfun aðrir
Skólavegur 6-8
230 Reykjanesbær


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum