Hoppa yfir valmynd
12. júní 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Skimun fyrir sjúkdómsvaldandi bakteríum í kjöti á markaði 2018

Árið 2018 fór fram skimun fyrir sjúkdómsvaldandi bakteríum í kjöti. Tilgangur skimunarinnar var að kanna stöðu sjúkdómsvaldandi örvera í afurðum þegar neytandinn fær þær í hendurnar og fór sýnataka því fram í verslunum. Skimunin var á vegum Matvælastofnunar, heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Ráðuneytið veitti 15 milljónir kr. til verkefnisins í fyrra og þá hefur fjármögnun þess einnig verið tryggð á þessu ári. Tekin voru um 600 sýni af kjöti af sauðfé, nautgripum, svínum og kjúklingum, af innlendum eða erlendum uppruna frá mars til desember 2018.

Skimunin sýnir að STEC E. coli finnst bæði í kjöti af íslensku sauðfé og nautgripum. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Matvælastofnunar. Þetta er í fyrsta sinn sem skimað er fyrir þessari eiturmyndandi tegund E. coli í kjöti af sauðfé og nautgripum hérlendis. Salmonella og kampýlóbakter greindust ekki í svína- og alifuglakjöti að undanskilinni salmonellu sem fannst í einu sýni af svínakjöti. Ljóst er að mikill árangur hefur náðst með forvörnum og eftirliti í eldi og við slátrun alifugla og svína.

Í fyrrgreindri frétt kemur fram að STEC (Shiga Toxin-producing Escherichia Coli) sé eiturmyndandi tegund E. coli. STEC geti valdið alvarlegum veikindum í fólki en algeng sjúkdómseinkenni eru niðurgangur en einnig getur sjúkdómurinn leitt til nýrnaskaða, svokallað HUS (Hemolytic Urea Syndrome). Fólk geti smitast af STEC með menguðum matvælum eða vatni, með beinni snertingu við smituð dýr,  eða umhverfi menguðu af saur þeirra.

Loks kemur fram í fréttinni að neytendur geti dregið verulega úr áhættu vegna smits frá salmonellu, kampýlóbakter og E. coli með því að gegnumelda kjöt fyrir neyslu og gæta að krossmengun. Megnið af E.coli sé á yfirborði kjöts og drepst því við steikingu/grillun á kjötstykkjum, en bakteríurnar dreifist um allt kjötið þegar það er hakkað. Því sé mikilvægt fyrir neytendur að forðast krosssmit við matreiðslu og gegnumsteikja hamborgara og annað hakkað kjöt.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum