Hoppa yfir valmynd
18. júní 2019

Starfsmenn í eldhús - Blönduós

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi, starfsmenn í eldhús.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir tveimur starfsmönnum í eldhús í 50-100% starfshlutfall.
Ráðningartími frá 1. september 2019.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn eldhússtörf og eldamennska
- Aðstoð við mat í matsal og umsjón með býtibúri

Hæfnikröfur
- Metnaður og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. 
Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN. 

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.07.2019

Nánari upplýsingar veitir
Elísabet Jónsdóttir - [email protected] - 455 4100
Ásdís H Arinbjörnsdóttir - [email protected] - 690 3243

Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Blönduós Eldhús
Flúðabakka 2
540 Blönduós


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum