Hoppa yfir valmynd
19. júní 2019

Áfangastjóri

Áfangastjóri – Menntaskólinn á Egilsstöðum

Menntaskólinn á Egilsstöðum auglýsir eftir öflugum og metnaðarfullum einstalingi í 100% starf áfangastjóra til afleysinga í eitt ár. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf.

Menntunar og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Nám á sviði stjórnunar auk kennsluréttinda er kostur.
Marktæk þekking og reynsla af sambærilegu starfi, störf innan menntakerfisins kostur.
Góð tölvufærni og geta til að tileinka sér nýja tölvutækni 
Mjög góð kunnátta og færni  í excel er skilyrði
Þekking á Innu og kennsluvef mikill kostur.
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Nákvæmni, frumkvæði og metnaður 
Skipulagshæfileikar ásamt mjög góðri færni í mannlegum samskiptum nauðsynleg
Góð enskukunnátta í ræðu og riti nauðsynleg.

Starfsvið
Hefur umsjón með nemendabókhaldi skólans, Innu. 
Sér um skýrslugerð varðandi nemendur, einkunnir, viðveru o.s.frv.
Útbýr stundaskrár skólans, skipuleggur viðtalstíma og annað tímaskipulag skólans.
Hefur eftirlit með skráningu kennara á viðveru, miðannarmati og einkunnum.
Útbýr prófskírteini.
Aðstoðar við innritun og vinnslu upplýsinga úr nemendabókhaldi.
Sér um þjónustu við útskrifaða nemendur, m.a. útgáfu skírteina á ensku.
Annast mat á námi úr öðrum skólum.
Ber ábyrgð á uppfærslu bókalista í Innu.
Hefur yfirumsjón með og bera ábyrgð á námsvali nemenda. 
Sér til þess að val nemenda sé fært í Innu og sér  um stundaskrárbreytingar við upphaf annar og leiðréttingu vals þegar þess þarf með.
Hefur umsjón með skipulagi námsbrauta og gera tillögur til skólameistara um námsframboð næstu anna.
Hefur umsjón með fjarvistakerfi skólans í samstarfi við skólameistara.
Starfar með nemendaþjónustu skólans
Önnur verkefni í samráði við skólameistara

Í Menntaskólanum á Egilsstöðum starfa rúmlega 40 starfsmenn. Við skólann er lögð áhersla á þróunarstörf í kennsluháttum og námsmati á grundvelli nýrrar skólanámskrár. 

Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar og staðfesting á menntun, fyrri störfum og listi yfir meðmælendur. Umsóknin þarf ekki að vera á sérstökum eyðublöðum en afrit prófskírteina skulu fylgja. 
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðuneytis og Kennarasambandsins.
Umsóknarfrestur rennur út 8. júlí 2019 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknir skal senda á netfangið [email protected] eða eftirfarandi heimilisfang:

Menntaskólinn á Egilsstöðum
b/t skólameistara,
Tjarnarbraut 25,
700 Egilsstaðir.

Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum